Að lesa bók er eins og að stunda kynlíf; það dregst yfirleitt á langinn og hefur engan sérstakan tilgang.
Myndir
Vefsíður
28.12.2006 19:51:28 / atli

hit the hammer

tékk it out... www.myspace.com/atli_frid

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 17:25:31 / atli

rollercoster of love!

friggin svít....fullt af nafnahugmyndum maður! um að gera að koma með fleiri hugmyndir að nafni á hljómsveitinni. ætli maður komi svo ekki með eikkað úrval...og fær skoðanir fólks á því...:D

og lag dagsins er án efa Rollercoster of love með The Red Hot Chili Peppers!!! fokkin snilld!:haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 07:46:02 / atli

óóójá!

friggin svít.... þannig er það nú að við fhingarnir í 3.fl kk. í handboltanum eigum mikla möguleika á að verða deildarmeistarar í ár:D var að frétta í gær að Hk sem voru yfir okkur með einu stigi voru að tapa í gær fyrir KA...sem er náttúrulega bara snilld! við eigum tvo leiki eftir, einn á móti fram og einn á móti haukum....ef við við vinnum báða þessa leiki þá erum við deildarmeistarar:D:D dugar reyndar að vinna einn og gera eitt jafntefli...þá vinnum við titilinn á innbyrðis markatölu....fkn snilld.

jæja, annars var helgin fín...hefði reyndar viljað taka eina hljómsveitaræfingu, en ætla að fá elfar og klemma til að spila í dag....svo mætti líka vekja athygli á því að við ætlum að reyna að finna almennilegt nafn núna :D.... "sætu kisurnar" var bara svona bráðabirgða...þannig að fólk má endilega koma með tillögur í comments....

later,

kveðja, Atli


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 07:36:58 / atli

erm...

ég hef komist að niðurstöðu: ég er gjörsamlega og algjörlega glaaaaaataður bloggari!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 13:33:31 / atli

allt að gerast!

JESS!!! Silvia Nótt í júróvisjón!!!

fín helgi annars, morfís á föstudaginn.... Flensborg vs. MH. ég mætti með flensborgarbolinn minn alveg geðveikt spenntur en endaði með því að sitja mh megin :$ fór heldur ekkert í flensborgarbolinn en hélt samt með flensborg!!!!!! þetta var samt algjör snilld og það verður nú bara segjast eins og er að morfísarlið mh er bara óóógeðslega gott! eftir morfís var farið í eikkað partý hjá eikkerri heiðu, allt stúúútfullt af einhverjum skátum að sem voru inní stofu með útilegustemmningu...ég fór nú bara í fótbolta og pílukast:D hahaha:D svo varð stelpan (heiða) skíthrædd því hún vissi ekki hvað ég héti:Dhahaha:lol:

svo á laugardaginn var bara chillað og ég, elFar, nína og andrea fórum í eikkað fótboltapartý til lenu og katrínu....og VÁ! tónlistin þarna inni var glöööötuð!! en nína snillingur reddaði málunum....

sunnudaginn var farið í sund og eftir sundið var farið í FEITUSTU kfc ferð sem ég hef nokkurn tíman farið í!!! svo um kvöldið var horft á the ISLAND!!!!

kv.atli


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 10:07:06 / atli

HAHAHA!

Brandari dagsins (stolinn af david bagelboy):

Af hverju eru stelpur með fætur?!

Til þess að það komi ekki sniglafar í parketið!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 10:05:25 / atli

já, í dag er miðvikudagur...

jámm....í gær var nú bara valentínusardagurinn, maður ætlaði nú að kaupa eina rós eða eitthvað svoleiðis til að sýna smá rómantísku hliðina mína 8);) en ekki gekk það nú upp... maður fór beint á æfingu eftir skóla og svo kom andrea eilla bara strax eftir æfinguna :P hahaha og maður fékk bara afbitna rós, hahaha:D svo var bara farið í ísbíltúr...nína og andrea voru nú bara tíkirnar okkar dabba, þær voru eikkað að keyra okkur á meðan að við vorum með alveg ógeðslega, brjálæðislega, geðsjúka tónleika í aftursætinu :D vantaði bara alla hina meðlimina úr Sætu Kisunum og þá hefði mátt bæta við "brenglaðir" tónleikar....

Unnum ÍR með 9 mörkum á mánudaginn, svít! Seinni hálfleikur var bara algjör sýra, ÍRingarnir voru ekki að nenna þessu því þeir vissu að við vorum búnir að vinna og svo vorum við bara á einhverju hálfu tempói...ekki alveg að gera sig...en hey! níu mörk eru níu mörk :D hefðum nú getað unnið með aðeins meiri mun :P en svo er bara úrslitabikarleikurinn næstur! JEIJJ!:D:D:D frikkin snilld! erum með eikkað hörku æfingarplan næstu tvær vikurnar fyrir leikinn:D þetta verður berjáááálaður leikur! ALLIR að mæta!!!! Sunnudaginn 26. feb! og styðja FH!!!!

p.s. gestabókin er hérna vinstra megin!!!!!

kv.atli


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 15:40:40 / atli

nettis

hahaha...já, gærdagurinn var eins og elFar myndi segja "lolaður"! HAHAHA, Klemmi snillingur og elFar voru aðeins of svalir að spóla bílana sína....en klemmi greyið var án efa svalasti gaurinn á norðuhveli jarðar í gærkvöldi, hahaha :D hann ætlaði að vera AÐEINS of nettur og klessti á elFar :lol: HAHAHA:D þetta var fyrir utan laugarásbíói, fórum á Final destination 3....fín mynd, samt ekki mikið hægt að breyta söguþráðin frá fyrstu myndinni...næstum alveg eins...nema það að slysin voru bara ALLT of svöl í þessari mynd....fokkin viðbjóður! en VEL gerður viðbjóður...svo í hlénu þá ætlaði sjálfur snillingurinn (ég) að vera svo sniðugur að stytta mér leið yfir sætin fyrir framan mig (langaði að vera eins svalur og Klemmi) en NEI! ég festi fokkin fótinn í stólinn! HAHAHA:D flaug næstum fram fyrir mig og þurfti að taka skóinn af mér :D hahaha:D

hahaha...svo eftir bíóið fórum við eikkað að rúnta, og viti menn! síminn minn hringdi og jámm...það var ákveðin manneskja sem vildi hitta mig :D hahaha:D:D þannig að ég, andrea, elFar og nína fórum og hittum hana :D hahaha...sjitt marr, eitt það fyndnasta sem ég hef lent í :D:D hahaha:D...eins og elFar sagði : "eina sem mér dettur í hug er lol"...hahaha:D:D ef þið viljið vita meira um þetta þá verðið þið bara spurja mig að þessu in person:D:D HAHAHA:lol:

kv.atli


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 23:11:10 / atli

fun

já, mér er óhætt að segja að akkúrat núna hlýtur það að vera mjööög svíít að vera Nína!



 

það voru 29 sem tóku þátt og eins og þið sjáið þá vann hún skoðanakönnunina mína! vei!:D fyrir ykkur sem vitið ekki hver Nína er þá er hún ein af partýpleisurunum ásamt andreu minni og lenu....

tékk it aút! www.blog.central.is/partypleis

 

í kvöld var ég að keppa á móti aftureldingu og ég er ekki frá því að þetta hafi verið leiðinlegasti og verst spilaði leikur hjá okkur fh-ingunum á þessu tímabili....vá! þetta var svo ógeðslega mikið rugl...ég er feginn að hafa sagt fólki að mæta EKKI á leikinn því að þetta var uppí Mosó (sem er einhver staðar í öræfunum)....EN...og það er stórt EN....við unnum leikinn með 8 mörkum8)....ef við hefðum nú verið uppá okkar besta þá hefðum við gjörsamlega RÚSTAÐ leiknum....en það vorum við ekki og gerðum við ekki.....það verður bara spennandi að sjá upptökuna af leiknum á morgun, þjálfarinn okkar á eftir að gjörsamlega hrauna yfir okkur....

kv.atli


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 18:06:33 / atli

Helgin

já þetta er búið að vera munch helgin mikla...sjitt hvað ég er búinn að bollast mikið!

föstudagurinn: muncha!!!

laugardagur: muncha!!!

sunnudagur: muncha!!!.......og muncha!!!

svona er þetta búið að vera hjá mér....mætti kannski skjóta inní að við fhingarnir unnum líka einhvern bikarleik á sunnudaginn, einhver undanúrslit. ætli það þýði ekki að við séum komnir í úrslitin, but how shoud i know. ekkert merkilegt... svo var bara hangið heima hjá andreu á föstudaginn með ella, nínu, lenu og andreu....á laugardaginn svaf ég svo feeeitast út....best í heimi! ætlaði svo líka að sofa út á sunnudaginn....en neinei....vaknaði kl.10 eins og ég væri með eldspýtu í nefinu....veit ekki hvað var málið, fór bara að hugsa um leikinn:D....en jæja... ætla að fara að setja Eagles inná ipodinn!! jeah!! bæ!8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 23:10:00 / atli

Sætur sigur!

Í tilefni dagsins!

http://www.hilmarp.com/rugl.php


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 22:08:58 / atli

sweeeeeeeat!!

sætur sigur! ójá...vorum að leggja hk með 2 mörkum! þannig að næst verður það laugardalshöllin þann 26 febrúar! allir að mæta!!!!! þetta verður SVAKALEGUR leikur!! veit að vissir valsarar eru ánægðir með útkomuna í leiknum á móti hk ;) en þeir eiga eftir að óska þess að hk hefði unnið þegar við erum búnir með þá!! :D hahaha! neinei, þetta á bara eftir að verða hörkuleikur! en jájá...ég blogg meira seinna, friður!

atli peaceberg


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 12:51:48 / atli

FH - HK

já!! í dag verður sko úthellt BLÓÐ!!!! urg! við fhingarnir erum að fara að taka á móti Hk uppí kapla í dag og þetta verður án efa all svakalegur leikur....ég vona það allavegana....en þetta eru undanúrslit í bikarnum og ef við vinnum þá þá keppum við á móti völsurunum 8) leikurinn byrjar klukkan átjánhundrað og hkingarnir verða sko ekki teknir með neinum vettlingatökum...hvet alla til að mæta og styðja okkur fhingana.

atli peaceberg


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 03:03:11 / atli

blabla

halló....I'm  back....ætla að vera með flottustu síðuna núna!!!!HAHAHAHA:D eða ætla að reyna allavegana....kem með eikkað innihaldsríkt blogg á næstunni....heilastarfsemin er ekki alveg upp á sitt besta akkúrat núna :P

Kv. the sheriff of ballsville

» 0 hafa sagt sína skoðun